top of page
  • Facebook
  • Instagram

Olivier Mourault

Trompetleikarinn Olivier Mourault fæddist í bænum Sceaux suður af París. Hann lagði stund á tónlistarnám á höfuðborgarsvæði Parísar, einkanlega í Versölum, og í Rueil-Malmaison undir handarjaðri Érics Aubier. Hann hélt til framhaldsnáms í Schola Cantorum Basiliensis í Sviss og sérhæfði sig þar í upprunaflutningi. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í trompetleik og var aðalkennari hans Jean-François Madeuf.

Olivier Mourault skrifaði prófritgerð sína um það hversu fjölhæfir tónlistarmenn trompetleikarar og lúðurþeytarar voru iðulega á barokktímanum. Að því loknu bætti hann við sig meistaragráðu í tónlistarkennslu á horn og trompet við Schola Cantorum Basiliensis. Olivier Mourault leikur reglulega á trompet eða horn með sveitum á borð við A Nocte Temporis, Musica Gloria, Hemiolia, Los Elementos, Abendmusik Basel, Les Épopées, Les Talens Lyriques og Consort Musica Vera. Hann leikur sömuleiðis á sleðatrompet með endurreisnarhljómsveit sinni Par le Regart. Í tómstundum sínum stundar Olivier Mourault fiðluleik sér til dægradvalar.

olivier.jpg
bottom of page