top of page
  • Facebook
  • Instagram

Bruno de Sá

​,,Bruno de Sá er stórkostlegur söngvari. Raddsviðið liggur hátt og söngröddin er hrein og tær. Hann stendur vel undir nafni sem sópranisti og getur framkallað ákaflega spennandi háa tóna. Á miðju raddsviði hefur hann sömuleiðis syngjandi og mjúkan hljóm sem er afar hrífandi.“
— Tímaritið Opéra Magazine.

 

Sópranistinn Bruno de Sá er fæddur í Brasilíu. Hann varð þekktur í heimalandi sínu fyrir breitt raddsvið og áhugaverða sviðsframkomu í verkum eftir Mozart, Britten og Bellini, einkanlega í São Pedro-leikhúsinu í São Paulo og á Amason-óperuhátíðinni í borginni Manaus. Hann hefur á skömmum tíma orðið einn eftirtektarverðasti söngvari sinnar kynslóðar á alþjóðavettvangi. Bruno de Sá kom fyrst fram á sviði í Evrópu árið 2019 á tónlistarhátíðinni Potsdam Sanssouci sem Akis í Pólýfemusi eftir Bononcini undir stjórn Dorothee Oberlinger.

Hann þreytti frumraun sína á barokkóperuhátíðinni í Bayreuth sem Bernharður í óperunni Karli sköllótta eftir Porpora undir stjórn Max Emanuels Cenčić. Þá söng hann Abel í óperunni Hinu fyrsta morði eftir Scarlatti undir stjórn Philippes Jaroussky við Montpellier-óperuna og á hvítasunnuhátíðinni í Salzburg. Hann hlaut góða dóma fyrir söng sinn í óperunni Hadríanus á Sýrlandi eftir Graun undir stjórn Dorothee Oberlinger en þar var hann í hlutverki Farnaspe. Síðar var óperan færð upp í leikhúsi Sanssouci-hallar í Potsdam. Meðal hlutverka Bruno de Sá undanfarin misseri má nefna frumraun hans sem Orfeifur í Orfeifi og Evrýdíku eftir Gluck og sem Sextus í Mildi Títusar eftir Mozart, hvort tveggja á Gluck-hátíðinni undir stjórn Michaels Hofstetters. Þá hefur hann komið fram í hlutverki Stefanós í Rómeó og Júlíu eftir Gounod í uppfærslu Normandí-óperunnar í Rúðuborg undir stjórn Pierres Dumoussaud, og sem Kleófis í óperunni Alexander á Indlandi eftir Vinci á barokkóperuhátíðinni í Bayreuth undir stjórn Martynu Pastuszku.

bottom of page