top of page
  • Facebook
  • Instagram

Páskakantötur

Norðurljós, Harpa | Þriðjudagur 23. mars | Kl. 19:00

2 - Bachcelona - Novembre 2024 Cádiz (2).jpg

Staðarhljómsveit Bachcelona-hátíðarinnar, Bachcelona Consort, hefur undanfarin misseri unnið að heildarflutningi á kantötum Johanns Sebastians Bachs með víðfrægum stjórnendum líkt og Ton Koopman, Shunske Sato, Václav Luks og Masaaki Suzuki. Á tónleikunum verða fluttar þrjár kantötur þar sem fram koma fjórir einsöngvarar, sem eru styrkþegar Salvat-sjóðsins í Barselóna, ásamt sveitinni Bachcelona Consort.

Kantöturnar tengjast allar páskahátíðinni: Bleib bei uns, denn es will Abend werden, BWV 6; Der Himmel lacht! Die Erde jubilieret, BWV 31; og Erfreut euch, ihr Herzen, BWV 66. Saman mynda þær fjölskrúðugt tónlistarferðalag og ægifagrar vörður á þeirri leið eru einsöngsaríurnar.

 

​

Bachcelona Consort

Katy Elkin, óbó

Ignacio Rama, fiðla

Ángela Moro, fiðla

Núria Pujolràs, víóla

Guillermo Turina, selló

Daniel Tarrida, semball

bottom of page