top of page
  • Facebook
  • Instagram

Barrokkbandið Brák

Barokkbandið Brák var stofnað árið 2014 og hefur skipað sér fastan sess í íslensku tónlistarlífi. Í hópnum eru hljóðfæraleikarar sem hafa sérhæft sig í upprunaflutningi á tónlist barokktímans og vilja nýta þekkingu sína til að halda tónleika á Íslandi. Stofnendur Brákar voru fiðluleikararnir Elfa Rún Kristinsdóttir, Laufey Jensdóttir og Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir.​

Barokkbandið Brák hefur staðið fyrir fjölda tónleika í Reykjavík og víðar og fær reglulega til liðs við sig íslenska og erlenda hljóðfæraleikara, söngvara og dansara til að glæða tónlist fyrri alda nýju lífi.

Þá hefur Brák haft það að leiðarljósi að efla nýja tónsköpun fyrir upprunahljóðfæri með því að frumflytja verk eftir íslensk samtímatónskáld. Brák hefur hlotið góðar viðtökur áheyrenda og gagnrýnenda og verið lofuð fyrir líflegt og fjölbreytt tónleikahald.

Ríkisútvarpið hefur hljóðritað tónleika Brákar og útvarpað þeim.

Hópurinn hefur margsinnis hlotið tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem tónlistarflytjandi ársins og fyrir tónlistarviðburð ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Verðlaun í þeim flokki féllu hópnum í skaut fyrir tónleikana Brák og Bach sem fram fóru í Eldborg í Hörpu árið 2020.

f4ed2074-3976-425a-86b6-1b73e4624d69.jpeg
bottom of page