Ensemble 1700

Dorothee Oberlinger stofnaði Ensemble 1700 í Köln árið 2002. Sveitin hefur bækistöð í sambandslandinu Nordrhein-Westfalen í Þýskalandi og er í fremstu röð barokksveita í Evrópu. Óperuuppfærslur sveitarinnar undir stjórn hennar hafa notið hylli og hlotið lof. Sveitin vinnur gjarnan með föstum hópi ýmissa samstarfsmanna, en auk þeirra hefur sveitin til að mynda komið fram með Andreas Scholl, Núriu Rial, Dorothee Mields og Reinhard Goebel.
Hljómplötur sveitarinnar hafa hlotið verðlaun á borð við Echo Klassik í Þýskalandi, Gullnu tónkvíslina í Frakklandi og Opus Klassik í Þýskalandi. Platan Pastorale kom út árið 2022 og var sögð ein besta klassíska jólaplata síðari ára. Ensemble 1700 kemur oft fram í virtum tónlistarhúsum og á þekktum hátíðum. Má þar nefna Konzerthaus í Vín, Fílharmóníuna í Köln, Saxelfarfílharmóníuna í Hamborg og Théâtre des Champs-Élysées í París.
Árið 2016 kom sveitin fyrst að óperuuppfærslu og var það Lúkíus Kornelíus Súlla eftir Händel. Síðan hefur Ensemble 1700 oft átt hlut að máli við uppfærslu á óperum fyrri alda í mikils metnum óperuhúsum og á frægum hátíðum, til að mynda Händel-hátíðinni í Göttingen, á snemmtónlistarhátíðinni í Innsbruck og í Markgreifaóperuhúsinu í Bayreuth. Hljóðritun sveitarinnar á Pólýfemusi eftir Bononcini hlaut Gullnu tónkvíslina í Frakklandi og Opus Klassik í Þýskalandi, en hljóðritun á Undraverðum áhrifum móður náttúru eftir Scarlatti hlaut Opus Klassik-verðlaunin sem óperuplata ársins 2024. Sviðsuppfærsla á verkinu Ástargarðinum eftir Scarlatti var fjármögnuð með framlagi þýska ríkisins úr sjóðnum Neustart Kultur árið 2022. Ráðuneyti menningar og vísinda í þýska sambandslandinu Nordrhein-Westfalen styrkti óperuverkefni sveitarinnar árin 2024–2026.






