top of page
  • Facebook
  • Instagram

Dorothee Oberlinger

​Dorothee Oberlinger er blokkflautuleikari, hljómsveitarstjóri, stjórnandi tónlistarhátíða og háskólakennari. Hún er meðal áhrifamestu tónlistarmanna á sviði snemmtónlistar og hefur hlotið ýmis virt verðlaun, til að mynda Echo Klassik, Gullnu tónkvíslina, ICMA-verðlaunin og Opus Klassik.

 

Hún hefur komið fram sem einleikari með sveitinni Ensemble 1700 allt frá því að hún stofnaði hana árið 2002. Þá hefur hún leikið einleik með þekktum barokkhljómsveitum á borð við Sonatori de la Gioiosa Marca, Musica Antiqua Köln, Arte del Mondo, B’Rock, Akademie für Alte Musik Berlin, Academy of Ancient Music, L’Arte dei Suonatori, Zefiro og Concerto Köln. Hún lagði stund á tónlistarnám í Köln, Amsterdam og Mílanó og vakti fyrst athygli á alþjóðavettvangi í Wigmore Hall í Lundúnum árið 1997 þegar hún bar sigur úr býtum í alþjóðlegri keppni í blokkflautuleik á vegum alþjóðasambands blokkflautuleikara og hljóðfærasmiðsins Moeck. Síðan hefur Dorothee Oberlinger komið fram á virtum hátíðum og í þekktum tónlistarhúsum á borð við Grand Théâtre de Genève, Laeiszhalle í Hamborg, Tonhalle í Zürich og í Théâtre des Champs-Élysées í París. Hún einskorðar sig ekki við tónlist 17. og 18. aldar heldur sinnir einnig nútímatónlist af alúð.

 

Hún hefur verið prófessor við Mozarteum-tónlistarháskólann í Salzburg síðan árið 2004 og stýrði þar snemmtónlistardeild háskólans árin 2008–2018. Dorothee Oberlinger er stjórnandi tónlistarhátíðarinnar í Bad Arolsen í Þýskalandi og hefur einnig stýrt hátíðinni Potsdam Sanssouci síðan árið 2018. Hún hefur sett ýmsar barokkóperur á svið með sveit sinni Ensemble 1700 síðan árið 2016 og hlotið lofsamlega dóma fyrir.

_DSC6760_DxO.jpg
bottom of page