Bachcelona Consort

Staðarhljómsveit Bachcelona-hátíðarinnar, Bachcelona Consort, hefur undanfarin misseri unnið að heildarflutningi á kantötum Johanns Sebastians Bachs með víðfrægum stjórnendum líkt og Ton Koopman, Shunske Sato, Václav Luks og Masaaki Suzuki. Á tónleikunum verða fluttar þrjár kantötur þar sem fram koma fjórir einsöngvarar, sem eru styrkþegar Salvat-sjóðsins í Barselóna, ásamt sveitinni Bachcelona Consort. Kantöturnar tengjast allar páskahátíðinni: Bleib bei uns, denn es will Abend werden, BWV 6; Der Himmel lacht! Die Erde jubilieret, BWV 31; og Erfreut euch, ihr Herzen, BWV 66. Saman mynda þær fjölskrúðugt tónlistarferðalag og ægifagrar vörður á þeirri leið eru einsöngsaríurnar.
Bachcelona Consort
Katy Elkin, óbó
Ignacio Rama, fiðla
Ángela Moro, fiðla
Núria Pujolràs, víóla
Guillermo Turina, selló
Daniel Tarrida, semball





