top of page
  • Facebook
  • Instagram

Barrokkbandið Brák & Oliver Mourhault

Hirðdansar og lúðraþytur

Norðurljós, Harpa | Miðvikudagur 25. mars | Kl. 19:00

560733407_1424675429665488_4923166155400077278_n (1).jpg

Blæbrigði barokktónlistar í Frakklandi og á Ítalíu á 17. öld voru gjörólík en þó leynir sér ekki að ítölsk áhrif skína einatt í gegn í franskri tónlistarsögu. Hirðtónskáld sólkonungsins, Jean-Baptiste Lully, fæddist til að mynda á Ítalíu og Parísarbúinn Élisabeth Jacquet de La Guerre var í hópi fyrstu tónskálda franskra sem tileinkuðu sér tríósónötuform Arcangelo Corelli og félaga.

Georg Muffat, sem varð víðförull um dagana, skapaði hins vegar sinn eigin stíl sem var blanda þessara þjóðlegu hefða. Barokkbandið Brák beinir kastljósinu að gjöfulu samspili tveggja menningarheima á tónleikunum í samvinnu við Olivier Mourault, sem gefur áheyrendum færi á því að kynnast einstökum hljóðheimi náttúrutrompetsins.

bottom of page