Bruno de Sá

,,Bruno de Sá er stórkostlegur söngvari. Raddsviðið liggur hátt og söngröddin er hrein og tær. Hann stendur vel undir nafni sem sópranisti og getur framkallað ákaflega spennandi háa tóna. Á miðju raddsviði hefur hann sömuleiðis syngjandi og mjúkan hljóm sem er afar hrífandi.“
— Tímaritið Opéra Magazine.
Sópranistinn Bruno de Sá er fæddur í Brasilíu. Hann varð þekktur í heimalandi sínu fyrir breitt raddsvið og áhugaverða sviðsframkomu í verkum eftir Mozart, Britten og Bellini, einkanlega í São Pedro-leikhúsinu í São Paulo og á Amason-óperuhátíðinni í borginni Manaus. Hann hefur á skömmum tíma orðið einn eftirtektarverðasti söngvari sinnar kynslóðar á alþjóðavettvangi. Bruno de Sá kom fyrst fram á sviði í Evrópu árið 2019 á tónlistarhátíðinni Potsdam Sanssouci sem Akis í Pólýfemusi eftir Bononcini undir stjórn Dorothee Oberlinger.
Hann þreytti frumraun sína á barokkóperuhátíðinni í Bayreuth sem Bernharður í óperunni Karli sköllótta eftir Porpora undir stjórn Max Emanuels Cenčić. Þá söng hann Abel í óperunni Hinu fyrsta morði eftir Scarlatti undir stjórn Philippes Jaroussky við Montpellier-óperuna og á hvítasunnuhátíðinni í Salzburg. Hann hlaut góða dóma fyrir söng sinn í óperunni Hadríanus á Sýrlandi eftir Graun undir stjórn Dorothee Oberlinger en þar var hann í hlutverki Farnaspe. Síðar var óperan færð upp í leikhúsi Sanssouci-hallar í Potsdam. Meðal hlutverka Bruno de Sá undanfarin misseri má nefna frumraun hans sem Orfeifur í Orfeifi og Evrýdíku eftir Gluck og sem Sextus í Mildi Títusar eftir Mozart, hvort tveggja á Gluck-hátíðinni undir stjórn Michaels Hofstetters. Þá hefur hann komið fram í hlutverki Stefanós í Rómeó og Júlíu eftir Gounod í uppfærslu Normandí-óperunnar í Rúðuborg undir stjórn Pierres Dumoussaud, og sem Kleófis í óperunni Alexander á Indlandi eftir Vinci á barokkóperuhátíðinni í Bayreuth undir stjórn Martynu Pastuszku.






